Þá styttist óðum í jólin og vonandi fara þau nú vel í alla. Hér er allt að verða klárt. Held að sé varla meira en að skella sér í sparifötin. Dagur er eiginlega að fatta þetta allt saman í fyrsta skiptið nú í ár, og er agalega spenntur yfir þessu öllu, en Dagmar veit ekkert hvað er í gangi, en brosir og skríkir með bróður sínum. Sigrúnu erum við því miður hætt að sjá. Hún er uppteknari af öðrum hlutum og verður bara að fá að hafa þá í friði.
Annars gengur lífið sinn vanagang hér líkt og annarsstaðar nema að hér er engin kreppa, eða þannig. Við höfum lokað mikið á fréttamiðla og kúplað okkur frá kreppuumræðu eins og okkur er unnt. Ég t.d. nota ipodinn meira í vinnunni til að hlusta á skáldsögur og skemmtilega tónlist. Svo hef ég verið upptekinn við að búa til fáránlega músík og myndbönd,J og lagt mig fram um að bjóða upp á skemmtilega hluti fyrir samstarfsfólkið mitt í vinnunni. Þetta hefur virkað allt mjög jákvætt á okkur, þannig að í okkar huga er engin sérstök kreppa. Ég held líka að það sé hreinlega verið að drepa fólk með því að hamra á þessu bulli daginn út og daginn inn. Það getur enginn mannlegur heili tekið á þessu kjaftæði án þess að leggjast í þunglyndi yfir því. Við opnuðum fyrir fréttirnar í gærkveldi og Inda taldi jákvæðu fréttafyrirsagnirnar. Þær voru engar sem er í sjálfu sér furðulegt svo skömmu fyrir jól. En þá er bara að sleppa því að horfa. Maður hefur val.
Jæja. Ég kveð með nokkrum frumsömdum fimmaurum í dagJ Fannst vanta nokkra tengdri minni grein.
Fimmaurinn: Einu sinni hittust nýmjólk og léttmjólk við rennibraut í sundlaug. Þá sagði nýja við létt: vilt þú ekki á undanrenna?????
Hvað sagði smjörið þegar það sá alla ostana? Hvað! Allir lagstir í kör???
Hvað sagði rjóminn við smjörgerðamanninn? Hrista en ekki hræra takk,,,
Tvær dósir hittust í mjólkurkælir. Hvað er að sjá, sagði önnur. Hefuru verið eitthvað veik??? Nei. Ég er bara full af kotasælu,,,,,,,
Yogúrtið við mjólkina. Hefuru farið eitthvað nýlega í biomjólk?????
til að kóróna fimmauravitleysuna í bili, þá enda ég svipað og ég byrjaði. Nýmjólk og léttmjólk hittust aftur við rennibrautina í sundi. Þá sagði nýja við létt: Vasssasú á undanrenna???????? 


